






Treat Yourself to Luxury
Love from Our Clients
Neuromuscular Impulse treatment
Ég er loksins farin að finna aftur fyrir sjálfri mér! Undanfarin ár hafa veikindi tekið mikið frá mér, líkamlega og andlega. Ég glími við Raynauds, vefjagigt og langvarandi heilsufarsvandamál sem ég tengi meðal annars við myglu.Verkir, spenna, svefnleysi og orkuleysi voru daglegt líf. Mér leið eins og taugakerfið væri alltaf í viðbragðsstöðu og jafnvel hversdagslegt áreiti varð yfirþyrmandi. Einbeitingin og sköpunargleðin hurfu og mér fannst ég hafa týnt sjálfri mér.Undanfarið hef ég verið í Neuromuscular Impulse Treatment hjá Hrafnhildi í Royal Clinic og finn mikinn mun.Spennan, verkirnir, kvíðinn og vanlíðanin hafa minnkað. Ég sef betur, finn meiri hvíld og á auðveldara með að vera innan um fólk og takast á við áreiti. Orkan, úthaldið, skýra hugsunin og sköpunargleðin eru að koma aftur.Raynauds-einkennin hafa líka minnkað verulega. Ég fann mun eftir fyrstu meðferðina og finn nú síður fyrir hvítum, ísköldum fingrum í kuldanum.Það stærsta er þó að finna aftur fyrir sjálfri mér — geta notið samveru, skapað og liðið betur í eigin líkama. Eftir langvarandi veikindi hafði ég næstum sætt mig við að svona yrði lífið. Nú finn ég aftur von. Ég á enn leið fyrir höndum, en breytingarnar hafa gefið mér ótrúlega mikið.Ég er innilega þakklát Hrafnhildi. Hlýjan, nærgætnin og einlægur áhugi hennar eru ómetanleg. Hjá henni finn ég að ég skipti máli og að á mig sé hlustað.Þetta snýst um meira en minni verki og meiri orku. Þetta snýst um að finna aftur manneskjuna sem ég var áður en veikindin tóku yfir.
- Auður